Lets drink to Chekov
Hann Stebbi kallinn settist her nidur voda samviskusamur og aetladi ad skirfa eitthvad voda flott um laugardaginn en kalluglan fann ekki yppsilonid a lyklabordinu, tannig ad eg (iris) rak hann i burtu...ligga ligga la og er her komin.
En fostudagurinn i Rokiskis byrjadi skemmtilega med raekjusalati i morgunmat sem vakti mikla lukku, tad jafnast ekkert a vid majones klukkan 9 ad morgni.
Eftir morgunmatinn forum vid i menningarhus Rokiskis tar sem vid attum ad leika a sunnudaginn. Tetta er risastort hus og er mikil starfsemi onnur i husinu fyrir utan leiklist, s.s dansklubbar, bio og ser starfsemi unga leiklistarfolksins. Inni i husinu var stort og mikid volundarhus og var mikil kunst ad rata um, tar eru morg litil herbergi, minni svid, stor geymur med bungum i golfi og sidan eitt risastort svid tar sem vid fengum vidattubrjalaedi og saum fram a ad syningin myndi lengjast um klukkutima tvi tad tok halft korter ad ganga fra svids haegra til svids vinstra.
Tad er mikill fengur ad bua ad svona merku husnaedi og tvi var mjog sorglegt ad sja hversu illa tad var farid. Allsatada matti sja sprungur i veggjum og a golfi, flest herbergin i nidunidslu og stigar ur ser gegnir, vid vissum stundum ekki hvort vid vaerum ad fara upp eda nidur.
Eftir tad forum vid arkandi nidur i midbaeinn tar sem hotelid okkar var og tadan a mikid og merkilegt safn sem var rett hja hotelinu. Safnid er i fallegu husi sem var i eigu greifa nokkurs fyrir langa langa langa langa longu og med tessu husi atti hann einnig alla Rokiskis eins og hun lagdi sig. Vid vorum leidd tarna ur einu herbergi i annad af manni sem var stuttfullur af frodleik um tennann greifa og taladi mikid um hvad fyrir augum bar. Med honum var sidan tulkur sem reyndi eftir bestu getu ad tyda tetta allt saman med misgodum arangri. En tetta var mjog fallegt allt saman og mikid og margt merkilegt ad sja, serstaklega fra seinni heimstyrjoldinni.
Eftir tetta forum vid beina leid yfir i hinn endann a midbaeinum og i alveg obodslega fallega og stora kirkju.Ekki mikid um tad ad segja annad en ad vid vorum heillud af henni.
Tegar tvi var lokid la leidin AFTUR i safnid tvi tar atti opunarhatid ad vera og tvaer syningar, fra Hollendingunum og Eistunum og aetlar nu Gudfinna ad taka vid og segja fra tvi.
Hatidin var opnud med miklum serimonium, titlatogi og tilheyrandi kynningum a leidtogum hopanna, lithaar leggja mikid upp ur sliku, en fyrir opnunina var mer, Herdi og Vilborgu bodid til borgarstjorans i Rokiskis thar sem vid fengum ad horfa a fraedslumynd um svaedid og vorum leyst ut med gjofum.
Nuh...fyrsta syningin i safninu var afar skemmtilegt verk fra Hollendingum sem fjalladi um sambond / sjonraen syning og skemmtileg og svo vard reyndar ur a Hollendingarnir Astrid og Frans urdu miklir felagar okkar Islendinga. Meira um thad sidar.
Tvi naest var komid ad Eistum ad syna bradskemmtileg syning, sem atti reyndar ad syna uti i hlodu vid hollina, en vard ad flyja inn vegna rigningar.
Svo var farid i stora leikhusid, a.k.a, frystihusid (leit ut eins og frystihus og thar var alltaf kalt lika) og thar saum vid lithaenska syningu, Happy birthday, Wanda June, e. Kurt Vonnegut, tjai mig ekki um syninguna sem slika, en nokkur stikkord, fiskabur, ryksuga, poppkorn og svo var lifandi fiskur drepinn a svidinu.
Um kvoldid var mikid stud, thoddansaflokkur saung fyrir okkur og dro allt gengid med ser i dans=mikid gaman.
Laugardagurinn var mikill stressdagur, vid forum i workshop hja hollendingum um morguninn, saum syningar fra Lettum, lihaum, russum og aftur lithaum, margt skemmtilegt thar, russneska syningin stod thar upp ur ad minu mati, svakvalega falleg. Loksins loksins komumst vid svo med dotid okkar a stora svidid og haegt ad fara ad spa i hvernig i oskupunum vid kaemum okkar syningu fyrir med gardinum, baktjoldum og ollu, leikarar voru reknir heim ad sofa a midnaetti, en Svana, Diddi, Eyfi, Benni, Gerdur og Hordur urdu eftir og unnu eins og skepnur til klukkan half fimm um nottina. Oll vorum vid svo maett i leikhusid klukkan atta um morguninn til ad taka taeknirennsli og graeja og gera, enda syningin okkar klukkan tolf a hadegi.
Spennan var mikil, hiti vid frostmark a svidinu, en okkur tokst thetta, syningunni var afar vel tekid og allir stodu sig frabaerlega. Vid fengum umsagnir fra serfraedingum i umraedum a eftir og thar fengum vid mikid hros fyrir hversu vel vid skildum hann Chekov kallinn. Russarnir heldu ekki vatni yfir syningunni og thad fannst okkur mikill bonus, russneski leikhopurinn vill endilega fa okkur a leiklistarhatid til sin......gaman ad tvi. Einn russinn kom til min og vildi skala fyrir Chekov , lets drink to Chekov, og er thad ordid hluti af skalarvenjum okkar her. Svo nadu Islenskar og Russneskar salir vel saman um kvoldid thar sem setid var langt frameftir og sungid til skiptis a russnesku og islensku, Stebbi og Eyfi toku Bolli Bu, ad sjalfsogdu, Baejargongin omudu og Bandalagid, asamt allskonar songvum.
Nu erum vid komin til Vilnius, dasamlega fallegt her. Hljop hratt yfir sogu og laet adra um ad fylla inn i eydurnar.
Bidjum ad heilsa ollum,
Kv. Gudfinna
Ţá erum viđ komin...
til Roskiskis. Það tók nú ekki nema átján tíma svona í það heila – og hvað er það nú milli vina? Enda nóg af vinum, bæði nýjum og gömlum.
Ferðin sjálf var nú alveg stóráfallalaus. Sluppum við að borga yfirvigt þrátt fyrir hestakerrur, gardínustangir og skammbyssur, sem jú, ullu smá uppákomu rétt fyrir brottför í Leifsstöð þar sem undirrituð þurfti að fara og vera viðstödd þegar taskan sem innihélt þær var opnuð – þetta eru jú afar raunveruleg verkfæri, leikstjórinn okkar lætur ekkert bjóða sér neitt annað :D. Byssurnar ullu susum ekki alvarlegum vandræðum, en öryggisvörðunum fannst sögin afar athyglisverður farangur.
Á Kastrup þurfti að hlaupa í að sækja farangur og tékka svo aftur inn hjá Air Baltic, sem þyrfti að fara að endurnýja bókunarkerfið hjá sér svo að hópar geti tékkað sig inn saman. Soldið vesen þar en allt leystist það farsællega og sluppum meira að segja við yfirvigt þar líka. Geri aðrir betur með heila hestakerru í farteskinu.
Síðan vorum við loksins komin til Litháen, á flugvöllinn í Vilníus sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Þar upplifði ég í fyrsta skipti að þurfa að fara með strætó frá flugvélinni í flugstöðina. Sem var bara skemmtilegt, þrátt fyrir rigninguna.
Í Vilníus beið okkar þessi líka indæla stúlka sem sagðist heita Lína, smalaði okkur upp í rútu og tilkynnti okkur að við yrðum þrjá tíma á leiðinni til Roskiskis. Við vorum alveg viss um að hún væri að grínast þangað til rútan var búin að vera klukkutíma að rúnta út úr bænum á svona 30 km/klst. Þá vonuðum við innilega að sá tími hefði verið reiknaður inn í...
Í þeirri ferð fór að færast einhvur galsi í mannskapinn, það var ort um kæfusex og ýmislegt fleira skemmtilegt og hlegið dátt. Það heyrðist samt mest í Ella.
Einhverjir voru þó orðnir dálítið framlágir og um tíma leit út fyrir fólk myndi bara gefast upp og fara að sofa en það var snarlega læknað með vodka, súkkulaði og nokkrum góðum rokum frá Ella. Stjörnurnar sem hægt að var að góna á út um lúguna í þaki rútunnar spilltu heldur ekki fyrir. Það læddist yfir mann öðru hverju viss óraunveruleikatilfinning að sitja í rútu í kolniðamyrkri á Litháenskum sveitavegi og fylgjast með stjörnudýrðinni út um gat á rútuþakinu... En svo kom hlátursroka frá Ella og smakk, maður náði jarðtengingu aftur.
Á endanum komumst við svo til Roskiskis. Þá var öllum smalað inn á veitingahús til að fá kvöldmat (um hálf tíu að staðartíma) og þar gátum við líka kynnst aðeins betur ferðafélögum okkar í rútunni sem hættu alveg við að forða sér hið snarasta eftir rútuferðina með okkur.
Eftir matinn var einróma samþykkt að fara heim á hótel að sofa (þó að Hollendingarnir væru að vísu soldið svekktir að við skyldum ekki vilja koma í vodkað með þeim – en þeir hresstust nú þegar þeim var lofað að við skyldum bæta þeim það upp kvöldið eftir).
Labas vakaras.
Leifsstöđvarfréttir
Við sitjum hér til borðs á Flugstöð Leifs Eiríkssonar og allt kostar peninga, mikið að við séum ekki rukkuð fyrir að sitja lengur en 5 mín. Í sama sæti. Allir komust gegnum tékkið og jafnframt komu allir óskaddaðir eftir að hafa strippað niður á nærhaldið í öryggishliðinu.
Stækkuð Leifsstöð þýðir lengri biðraðir og meira rugl og vitleysa. En ekki var þó öll vitleysan búin, Vilborg framkvæmdastjóri BÍL var kölluð upp í öryggisgæsluna af konu með svo stóran barm að flest allt hennar tal týndist oní bringupúðana. En svo vel vildi til að Sigurgeir hafði ákveðið að vera svo örlátur að gefa af sér á klósettinu og þar heyrðist í konunni líkt og hún stæði með gjallarhorn fyrir utan basin hjá Sigurgeiri og gargaði í það af öllum lifs og sálarkröftum.
Þegar svo til kasta laganna varða kom dugði ekkert minna en víkingasveitin og Færeyski uppgjafarherinn skipaður mönnum undir kjörvigt og yfir lögaldri og Vilborg kom til baka grá fyrir járnum bæði á höndum og tám.
Fljótlega kom upp hversu þessi ofsi og fyrirgangur í öryggisgæslunni sætti, hún var eitthvað ósátt við þessar tvær skammbyssur sem voru í farteskinu hjá okkur í tösku frá leikfélaginu en taskan hafði óvart verið tékkuð inn á Vilborgu. Við sögðum að sjálf sögðu að við könnuðumst ekkert við Vilborgu en þegar hún gat nefnt alla með nafni og rakið ættliði allra í hópnum aftur á 3 öld fyrir krist auk þess að gefa upp ýmsar persónulegar upplýsingar um hvern og einn sem ekki einu sinni við sjálf vissum um okkur, tók lögreglukonan ekki mark á afneytun okkar á Vilborgu.
Það var því aðeins eitt til ráða, Ingi var sendur með þessari góðu lögreglukonu og hann látinn kenna henni hvernig átti að halda á byssunum af sinni stöku snilld en tvær konur hafði hann þegar lagt með þeim hætti og nú lagði hann þá þriðju með sínu ásthjalandi unaðsröddu eins og honum einum er lagið. Konan hafði löngu áttað sig á því að byssurnar voru ekki ekta og engin hætta á ferð og því engin ástæða að til að gera athugasemdir við þær enda voru þær bara leikmunir en hún var nú ekkert að stoppa hann Inga okkar fyrst hann var jú byrjaður á sínu bliða fasi.
Eftir að hafa hæft kópeka með byssunum og skotið konunni ref fyrir rass fékk hann að halda leiðar sinnar og við vorum laus allra mála og gátum haldið í vélina.
Svona fór um flugferð þá. Það skal þó tekið fram að frásögn þessi gæti verið nokkuð ýkt á vel útilátnum stöðum og jafnframt í suma og jafnvel flesta staði allsendis ósönn og hlaðin kryddi frá Arabíu og Indlandi.
Það er Sörli Sörlason sem talar frá Leifsstöð
Dagskrá hátíđarinnar - Interrampa 2007
SCHEDULE OF THE FESTIVAL „INTERRAMPA -2007“ FRIDAY, 5th
16.00 Reception by the Major of Rokiskis District Rimantas Velykis Municipality
17.00 OPENING Stairs of the Museum
17.30 HOLLAND. Theatre of „Spot’70” “PAIRPLAY”
by J. Raaijmakers, dir. J. Raaijmakers (35 min) Museum Hall
18.30 ESTONIA. A.H. Tammsaare Theatre of Tallinn “LOVE STORIES IN OLD TOWN” by A. Randmets, dir. A.Velt (1 h) Museum Barn20.00 LITHUANIA. Telsiai Zemaite‘s Drama Theatre
“HAPPY BIRTHDAY, WANDA JUNE” by K. Vonnegut, dir. J. Buziliauskas (1,10h) C.H. Grand Hall21.30 Get-together C.H. Lobby (1st Floor)
SATURDAY, 6th9.30 Workshop by the Dutch Director Job Raaijmakers C.H. Grand Hall
10.30 LATVIA. Theatre “Vinnijs” of Riga Cultural Centre “Maza Gilde”
“ OUR COMMON HOME” by H. Paukšs, dir. M. Saure (1 h) C.H. Entertainment Hall
12.00 LITHUANIA. Rokiskis People’s Theatre „PROGENY OF
SARMATAI“ by R. Abukevičius, dir. J. Buziliauskas (1,10 h) C.H. Grand Hall
14.30 Workshop by the Icelandic Director Hörður Sigurðarson C.H. Small Hall
15.30 Expert Discussion on the Performances C.H. Small Hall
17.00 RUSSIA. Association of Theatre and Arts of Pochvistnevo ”Sad”„WINTER“ by E. Griškovec, dir. A. Jakimanskij (1,20 h) C.H. Grand Hall
19.30 LITHUANIA. Pasvalys Theatre of Regional Museum
„HELVER’S NIGHT“ by I. Wilquist, dir. G. Kutkauskas (1,20 h)C.H. Grand Hall
21.00 Get-together C.H. Lobby (1st Floor)
SUNDAY, 7th10.00 Workshop by the Russian Director Aleksej Jakimanskij C.H. Small Hall
11.00 Workshop by the Estonian Director Vladimir Prokopenko C.H. Small Hall
12.00 ISLAND. Selfoss Theatre „SNEEZE“ by A. Chechov ,dir. H. Sigurðarson (2 h) C.H. Grand Hall
15.00 Expert Discussion on the Performances C.H. Small Hall
16.30 LITHUANIA. Vilnius Theatre „Ramūno ateljė“„AND IT WILL ALWAYS BE TOO LATE“ by A. Camus,
dir. R. Abukevičius (1 h) C.H. Entertainment Hall
18.00 ESTONIA. Theatre of Narva „V Teater“ “ILLUSIONS”by V. Prokopenko , dir. V. Prokopenko (40 min.) C.H. Grand Hall
CLOSURE19.30 Get-together C.H. Lobby (1st Floor)
Alveg...
Hún er sumsé undir linknum "Hnerri á ferð" í kassanum "Aðalvalmynd" hérna til vinstri.
Þar á nú einnig að vera hægt að finna lista yfir ferðafélaga.
Með færslunni frá Geira hér fyrir neðan ætti því ekki að fara á milli mála hvenær við erum að fara...
Flugferđir til og frá Lithaugalandi
Kef. - Köben. - Icel. Express
4.okt. - FHE 901 - Brottf. 7.15 - Lend. 12.25
Köben. - Viln. - Air Baltic
4.okt. - BT 164 - Brottf. 15.05 - Lend. 17.35
Viln. - Köben. - Air Baltic
11.okt. -BT 161-Brottf. 7.00 - Lend. 7.30
Köben. - Kef. - Icel. Express
11.okt. - FHE904-Brottf. 21.30 - Lend.22.50
Engir vökvar né oddahlutir í handfarangri
Sviđiđ í Rokiskis
Mér var að berast mynd af sviðinu sem við sýnum á í Litháen. Þið getið séð það með því að smella á Myndir hér til vinstri
Verð að hlaupa. Er að fara láta slétta á mér hárið.
Húsakynni og annađ
http://www.apartment-vilnius.com/Pilies.htm
http://www.apartment-vilnius.com/Latako.htm
http://www.apartment-vilnius.com/Pilies2.htm
http://www.apartment-vilnius.com/Latako2.htm
Og hér er frægur litháenskur veitingastaður, þar er hægt að fá bjarnarkjöt (algjört must fyrir Inga, Írisi og Sigurgeir)- sýnist hann vera frekar spennandi
http://www.lokys.lt/
Ferđaplan og fleira skemmtilegt
Búin að setja inn grófa ferðaáætlun og listann frá Sigrúnu eins og hann leggur sig.
Endilega breytið, bætið eða gerið athugasemdir.
Hmm, já og smá ábending - endilega stækkið letrið þegar þið setjið eitthvað inn...
Ég er kannski bara farin að tapa (enn meiri) sjón, en þetta er ferlega smátt...
12 pt er fínt.
Ferđaplön
Kv. Múraskína